Jolly Pets: Abyssinian 2000 pcs
Flott 2000 bita púsl frá Heye með mynd eftir listamanninn Dean Russo. Russo er frá New York og lærði grafíska hönnun þar. Hann notar blandaða miðla og fær tæknilegan innblástur frá götulist. Því notast hann oft við klippimyndir, málningarúða og stensla. Hann er einnig tónlistarmaður og mikill dýravinur og því eru myndir hans aðallega af dýrum eða þekktum einstaklingum.