Alex Junior – Busy Bead Maze Mermaid Adventure –
Frábært þrívíddarvölundarhús með hafmeyjuþema. Hægt er að færa hafmeyjur, fiska og önnur sjávardýr eftir leiðum og vírum sem liggja upp og niður, undir og yfir myndskreytt borðið. Auk þess eru á borðinu ýmsar aðrar þrautir sem hjálpa líka til við að þjálfa samhæfingu augna og handa og skilning á orsökum og afleiðingum.