The Escape –
Skondið og skemmtilegt 1000 bita púsl frá Jumbo. Strokufangi gengur laus í borginni. Hafin er umfangsmikil leit og lögregluþjónar eru á stjái út um allt. Mikil ringulreið ríkir. Málið er komið í fjölmiðla sem krefja fangelsisstjórann um svör. Hvar er strokufanginn? Hvernig slapp hann? Á hann sér vitorðsmann?
Jan Van Haasteren hefur myndskreytt ótal púsl fyrir Jumbo. Hann er þekktur fyrir skondnar og litríkar myndskreytingar, fullar af smáatriðum. Oft laumar hann sömu atriðunum inn í myndirnar, s.s. hákarlaugga, Sankti Nikulási eða sjálfsmynd. Púslarar geta skemmt sér við að leita að þessum smáatriðum.