Matarvagnahátíðin
Matarvagnar njóta aukinna vinsælda þar sem úr þeim er hægt að grípa með sér alls konar gómsætan skyndibita og þeir geta farið um og boðið upp á veitingar fyrir þá sem ekki geta eða vilja setjast inn á veitingastað. En stundum safnast matarvagnarnir saman og slá upp sameiginlegri veislu. Ringulreið getur þó skapast ef skipulagsmálin eru ekki upp á 10. Hvað skyldu heilbrigðis- og matvælaeftirlitin segja við þessu?
Jan Van Haasteren hefur myndskreytt ótal púsl fyrir Jumbo. Hann er þekktur fyrir skondnar og litríkar myndskreytingar, fullar af smáatriðum. Oft laumar hann sömu atriðunum inn í myndirnar, s.s. hákarlaugga, Sankti Nikulási eða sjálfsmynd. Púslarar geta skemmt sér við að leita að þessum smáatriðum.