JVH Meistaramótið 1000 bitar ,

JVH Championship Football 1000 pcs

Það er líflegt á fótboltaleiknum, enda enginn venjulegur leikur því þetta er meistaradeildin þar sem er til mikils að vinna… ef leikmennirnir fá þá nokkurn frið til að spila heiðarlegan fótbolta því allt virðist ganga á afturfótunum á leikvanginum.

Jan Van Haasteren hefur myndskreytt ótal púsl fyrir Jumbo. Hann er þekktur fyrir skondnar og litríkar myndskreytingar, fullar af smáatriðum. Oft laumar hann sömu atriðunum inn í myndirnar, s.s. hákarlaugga, Sankti Nikulási eða sjálfsmynd. Púslarar geta skemmt sér við að leita að þessum smáatriðum.

Aldur:
Fjöldi Púslbita:
Myndefni púsls:
Vörunúmer: 00030
Stærð: Stærð púslaðs púsls: 68x49 cm
Þyngd: 790 g
Stærð pakkningar: 27x37x7 cm
Framleiðandi Púsls:
Listamaður púsls:
Útgefandi:
Innihald:
1000 púslbitar