JVH Reindeer Races 500 bitar ,

Hreindýrakapphlaup

Skondið 500 bita púsl frá Jumbo og meistara Jan Van Haasteren heitnum. Einhvers staðar á norðurhveli jarðar fékk einhver þá hugmynd að láta hreindýr þreyta kapphlaup… en þau virðast misáhugasöm um það og margir óvæntir gestir skjóta upp kollinum í keppninni.

Jan Van Haasteren hefur myndskreytt ótal púsl fyrir Jumbo. Hann er þekktur fyrir skondnar og litríkar myndskreytingar, fullar af smáatriðum. Oft laumar hann sömu atriðunum inn í myndirnar, s.s. hákarlaugga, Sankti Nikulási eða sjálfsmynd. Púslarar geta skemmt sér við að leita að þessum smáatriðum.

Aldur:
Fjöldi Púslbita:
Myndefni púsls:
Vörunúmer: 55-20051
Stærð: púslaðs púsls: 49 x 35 cm
Framleiðandi Púsls:
Listamaður púsls:
Innihald:
500 púslbitar
Product ID: 31796 Vörunúmer: 55-20051. Categories: , . Merki: , , , , , .