The Circus –
Veglegt 5000 bita púsl frá Jumbo, stútfullt af hnyttnum smáatriðum fyrir metnaðarfulla púslara. Það er allt að fara úr böndunum í sirkusnum. Menn og dýr leika listir sínar og áhorfendur skemmta sér konunglega.
Jan Van Haasteren hefur myndskreytt ótal púsl fyrir Jumbo. Hann er þekktur fyrir skondnar og litríkar myndskreytingar, fullar af smáatriðum. Oft laumar hann sömu atriðunum inn í myndirnar, s.s. hákarlaugga, Sankti Nikulási eða sjálfsmynd. Púslarar geta skemmt sér við að leita að þessum smáatriðum.