Fólk hefur misjafnar ástæður fyrir því að heimsækja suðurpólinn, þangað fara vísindamenn jafnt sem ferðamenn. En það breytir því ekki að mörgæsirnar eru þar í meirihluta og þær þurfa að komast sinnar leiðar frá varpstöðvunum og í sjóinn… hvort sem fólk stendur í vegi þeirra eða ekki.
Jan Van Haasteren hefur myndskreytt ótal púsl fyrir. Jumbo. Hann er þekktur fyrir skondnar og litríkar myndskreytingar, fullar af smáatriðum. Oft laumar hann sömu atriðunum inn í myndirnar, s.s. hákarlaugga, Sankti Nikulási eða sjálfsmynd. Púslarar geta skemmt sér við að leita að þessum smáatriðum.



