Skemmtilegt 1000 bita púsl frá Jumbo með mynd frá Jan Van Haasteren stúdíóinu. Hún sýnir þeirra sýn á eyjuna Texel sem við norðanvert Holland og er vinsæll ferðamannastaður.
Flestir aðdáendur Jan Van Haasteren þekkja án efa helsta einkennismerki hans, hákarlauggann, sem er að finna í öllum hans púslum. Önnur smáatriði sem birtast iðulega í púslunum hans eru: Sánkti Nikulás, hendurnar, fölsku tennurnar og sjálfsmynd af Haasteren sjálfum. Meistarinn sjálfur er látinn en lærlingar hans hafa haldið uppteknum hætti og gleðja áfram púslara um allan heim.