Vínekran
Flott 3000 bita púsl frá Jumbo úr smiðju JVH stúdíósins sem heldur áfram að færa púslurum skemmtileg og skondin púsl í anda Jan Van Haasteren heitins. Á vínekrunni er mikið um að vera og mörgum verkum þarf að sinna. Getur þú samt fundið fastagestina sem birtast reglulega á Jan Van Haasteren púslunum? Jan Van Haasteren púsl er meira en bara púsl, það er ævintýrasagnaröð með kunnuglegum persónum í aðalhlutverkum í endalausum skrípaleik með absúrdískum smáatriðum. Púsluð stærð: 122 x 85 cm.