Spennandi og krefjandi kænskuspil fyrir 2 leikmenn, 10 ára og eldri, frá Thames&Kosmos. Tveir kahuna – fornir seiðmenn Kyrrahafsins – keppast um að ná yfirráðum yfir eyjaklasanum sem samanstendur af tólf litlum eyjum. Örlögin ráða hvað spil þeir fá en þeir nota töfra sína, kænsku og visku til að auka áhrif sín og sölsa undir sig fleiri eyjar.