European Landmarks
Flott 2000 bita púsl frá Educa með mynd af ýmsum kennileitum, aðallega byggingum, frá Evrópulöndum frá Bretlandi til Rússlands, frá Danmörku til Grikklands. Púsluð stærð er ca. 96 x 68 cm.
Educa Borras er einn þekktasti spila-og leikfangaframleiðandi Spánar en forveri þess, Borras Plana, var stofnaður árið 1894. Í dag er fyrirtækið leiðandi í framleiðslu á vönduðum spilum, púslum, leikjum og töfrabrelluboxum.



