Skemmtileg útgáfa af vinsælu spili fyrir 2 leikmenn, 10 ára og eldri. Tveir könnuðir halda í rannsóknarleiðangra til allra heimshorna; Himalaya-fjöllin, regnskóga Mið-Ameríku, egypsku eyðimörkina, dularfulla eldfjallið og niður á hafsbotn. Þegar leikmenn setja út spil mótast leið þeirra og þeir vinna inn stig. Djörfustu ofurhugarnir veðja um velgengni leiðangranna. Könnuðurinn með flest stig eftir þrjár umferðir sigrar.