Magformers Educational Math 42 –
Magformers eru skemmtileg og litrík segulform sem má festa saman til að gera flottar myndir eða skúlptúra. Með 42 bita stærðfræðisettinu er hægt að læra um mynstur, rúmfræðileg form, samlagningu og frádrátt og margt fleira. Þroskandi leikfang sem virkjar sköpunarkraft og þjálfar lausnamiðaða hugsun.


