Flottur tilbúinn pakki sem er hægt að taka með á Magic mótið. Þessi sérvaldi 60 spila stokkur er samansafn af spilum úr mismunandi settum og inniheldur m.a. 10 sjaldgæf spil. Teningur fylgir einnig og 15 aukaspil. Settið er vottað og má nota á keppnismóti.
Sarkhan hefur endurskapað örlög Tarkir og nú berjast allir tveggja lita ættbálkar undir stjórn drekahöfðingja. Dragons of Tarkir er þriðja og síðasta settið í Khans of Takir vörulínunni.
Í Magic The Gathering safnkortaspilinu ert þú Planeswalker; einn af kröftugustu galdramönnunum alheimsins og annara tilverustiga. Með hjálp hinna voldugu spila magnar þú seið, laðar til þín ýmsar kynjaverur og býrð þær til baráttu gegn öðrum gladramönnum með það að markmiði að ná lífsstigum andstæðingsins niður í 0 og slökkva lífsneistann.