Sérlega veglegt sett með hvorki meira né minna en 215 Magic spilum alls! Handhægt geymslubox fylgir fyrir spilin og tvær spilastokkaumbúðir að auki. Flottur Special Edition teningur fylgir einnig og glæsilegt fræðslu- og reglurit um Magic Dragons of Tarkir þar sem hægt er að fletta upp öllum spilunum í seríunni.
Sarkhan hefur endurskapað örlög Tarkir og nú berjast allir tveggja lita ættbálkar undir stjórn drekahöfðingja. Dragons of Tarkir er þriðja og síðasta settið í Khans of Takir vörulínunni.
Í Magic The Gathering safnkortaspilinu ert þú Planeswalker; einn af kröftugustu galdramönnunum alheimsins og annara tilverustiga. Með hjálp hinna voldugu spila magnar þú seið, laðar til þín ýmsar kynjaverur og býrð þær til baráttu gegn öðrum gladramönnum með það að markmiði að ná lífsstigum andstæðingsins niður í 0 og slökkva lífsneistann.