MTG D&D Adventures in the Forgotten Realm Commander Deck
Mesti draumur spilanörda hefur ræst! Magic the Gathering og Dungeons & Dragons leiða saman hesta sína í settinu Adventures in the Forgotten Realms. Spilað er að mestu eins og í MTG en sögusviðið Forgotten Realms og persónurnar tilheyra D&D sem og ný spil sem hafa áhrif á gangverk leiksins, s.s. dýflissuspil. Kannið dýflissur, fyllið heila stríðsvelli af drekum. Notið galdra og berjist með eða við frægar persónur, s.s. Drizzt Do‘Urden eða Asmodeus. Hægt að velja um 4 commander stokka í mismunandi litum (hvítur, grænn, blár og rauður) en hver þeirra inniheldur 100 spil ásamt 1 commander spili og aukahlutum.