Commander stokkarnir eru hluti af Zendikar Rising viðbótinni og innihalda fullbúinn stokk með 99 spilum, auk Commander glansspils, 10 tvíhliða spila, lífshjóls og geymslubox. Sagan heldur áfram í Zendikar þar sem Eldrazi skrímslin eru horfin en hafa skilið eftir sig eyðileggingu. Þangað fara nú ofurhugar í leit að verðmætum en einnig má þar finna gamalkunnar persónur eins og Nahiri og Nissa sem hafa verk að vinna.
.