Sætt púslsett frá Educa sem inniheldur tvenn 59bita púsl með myndum af Mikka mús og vinum hans. Púslbitarnir eru úr viði og púsluð stærð er 26 x 18 cm.
Educa Borras er einn þekktasti spila-og leikfangaframleiðandi Spánar en forveri þess, Borras Plana, var stofnaður árið 1894. Í dag er fyrirtækið leiðandi í framleiðslu á vönduðum spilum, púslum, leikjum og töfrabrelluboxum.