My Soft LED Nightlight Bear L
Sætt næturljós frá Kaloo fyrir börn í formi hvíts bangsa sem gerður er úr mjúku sílíkoni. Bangsinn gefur frá sér milt ljós og hægt er að velja um 3 mismunandi liti með því að þrýsta á höfuðið. Hlaðið með meðfylgjandi USB snúru, tekur um 2 klst að hlaða og hleðslan endist í um 6 klst. Stærð: 18 cm. Hægt að þvo með rökum klút.
Franska fyrirtækið Kaloo framleiðir vönduð og falleg tuskudýr og leikföng sem veita ungabörnum öryggistilfinningu og ljúfa drauma. Flestar Kaloo vörur má þvo og þær fást í fallegum gjafapakkningum.



