Hittu þjálfarana í Pokémon herkænskuskólanum! Veglegur pakki sem inniheldur allt sem tveir leikmenn þurfa til að spila spennandi Pokémon leik, þ.á.m. fullbúna stokka. Velja má t.d. um Charizard eða Pikachu til að leiða teymið gegn öðrum þjálfara og síðan er hægt að skipta um stokk og breyta um Pokémona. Góð leið til að æfa sig á spilinu og þjálfa upp herkænsku á móti andstæðingi.