Dinosaurs Gathering
Flott 500 bita púsl frá Educa með mynd af risaeðlum sem virðast vera að flýja möguleg endalok sín þar sem eldfjöll gjósa í fjarska. Púsluð stærð er ca. 48 x 34 cm.
Educa Borras er einn þekktasti spila-og leikfangaframleiðandi Spánar en forveri þess, Borras Plana, var stofnaður árið 1894. Í dag er fyrirtækið leiðandi í framleiðslu á vönduðum spilum, púslum, leikjum og töfrabrelluboxum.



