Flott 1000 bita púsl frá Educa Borras með mynd af hinni frægu Sagrada Familia kirkju í Barcelona á Spáni sem var upphaflega hönnuð af Antoni Gaudi í kringum 1880 en er enn í byggingu.
Educa Borras er einn þekktasti spila-og leikfangaframleiðandi Spánar en forveri þess, Borras Plana, var stofnaður árið 1894. Í dag er fyrirtækið leiðandi í framleiðslu á vönduðum spilum, púslum, leikjum og töfrabrelluboxum.