Flott segulteikniborð frá Lexibook, skreytt með dýramyndum. Hægt er að teikna á borðið með pennanum og fá út mismunandi liti með því að teikna á ákveðin svæði og einnig að búa til form með stimplunum. Síðan er hnappinum neðst rennt fram og til baka til að stroka út myndina. Endalaus og endurnýjanleg skemmtun!
Lexibook framleiðir aðallega margvísleg raftæki fyrir fyrirtæki og einstaklinga, en einnig leikföng og hljóðfæri fyrir börn með þekktum merkjum, s.s. Disney, Marvel, Barbie og Paw Patrol.