TileBlox Innblástur 20 ,

TileBlox Inspire 20 pcs Set

Litríkt 20 bita byggingarsett frá Tileblox sem inniheldur fallega segulkubba í pastellitum ásamt leiðbeiningum (sem þarf ekki að fara eftir frekar en maður vill). Frábært sett fyrir byrjendur sem geta lært og leikið sér samtímis.

Tileblox vörurnar líkjast nokkuð Clicformers smellukubbunum og Magformers seglunum, enda frá sömu framleiðendum sem tryggja gæði og vöruhönnun sem örvar huga barna. Einnig hafa Tileblox vörurnar svipað lærdómsgildi en hönnun þeirra er hugsuð út frá svonefndum S.T.E.M. fræðum sem veitir börnum undirstöðu í ýmsum raungreinum; vísindum (science), tækni (technology), verkfræði (engineering) og stærðfræði (mathematics).

Vörunúmer: 1030007
Útgefandi:
Innihald:
20 bitar
Leiðbeiningar
Product ID: 20578 Categories: , . Merki: , .