Flott 1000 bita púsl frá Educa með mynd af hinum ýmsu persónum sem heyra undir hatt Disney í myndatöku. Þar má sjá prinsessur, dýr, álfa, skrímsli, leikföng og káta krakka. Púsluð stærð er 68 x 48 cm.
Educa Borras er einn þekktasti spila-og leikfangaframleiðandi Spánar en forveri þess, Borras Plana, var stofnaður árið 1894. Í dag er fyrirtækið leiðandi í framleiðslu á vönduðum spilum, púslum, leikjum og töfrabrelluboxum.



