My Protective Straps Zebra
Þægilegar bílbeltishlífar úr Voyage ferðavörulínunni frá Kaloo fyrir börn frá sex mánaða aldri. Hlífarnar sem eru í formi sebrahests, eru festar á bílbeltið með frönskum rennilás og auka þægindi barnsins á ferð. Hægt er að nota báðar hliðar hlífanna og er önnur mýkri og hentar betur í kaldara veðri en hin veitir kælingu í hita. Stærð: 7 x 18 cm. 2 stk í pakka.
Franska fyrirtækið Kaloo framleiðir vönduð og falleg tuskudýr og leikföng sem veita ungabörnum öryggistilfinningu og ljúfa drauma. Flestar Kaloo vörur má þvo og þær fást í fallegum gjafapakkningum.