Wacaco Minipresso Nespresso

Minipresso NS

Minipresso NS ferðakaffivélin frá Wacaco er nett, létt og fyrirferðalítil en þessi NS týpa er sérstaklega hönnuð fyrir Nespresso hylki. Þær eru einungis knúnar með handafli og er því hægt að nota hvar og hvenær sem er.

Allt sem þú þarft er Nespresso kaffihylki og heitt vatn og espresso bollinn þinn er svo gott sem klár. Bollinn sjálfur er innbyggður í hönnunina sem og kaffiskeið. Einnig fylgir lítill bursti til að hreinsa vélina.

ATH Kaffihylki ekki innifalin.

Hugmyndin á bak við WACACO er að þú getir fengið þér þitt uppáhaldskaffi, nýlagað, hvar og hvenær sem er! Þessar handhægu, litlu kaffikönnur eru knúnar með handafli svo þú getur lagað þér heitt og ilmandi kaffi uppi á fjalli, niðri í fjöru, í útilegunni, í bílnum (ekki á meðan þú keyrir samt), alls staðar! Til eru mismunandi litir og gerðir og margvíslegir aukahlutir sem hægt er að bæta við eftir þörfum, s.s. til að stækka kaffihólfið, laga tvöfaldan espresso eða til að nota með t.d. dolce gusto eða nespresso hylkjum. Með Wacaco er allur heimurinn þitt eigið kaffihús.

Stærð: 17,5 x 7 x 6 cm

Þyngd: 350 g

Vatnshólf: 70 ml

Kaffihólf: Nespresso hylki

Þrýstingur: 8 bar (116 psi)

Innihald:

  • Minipresso NS ferðakaffivél
  • Poki
  • Bursti
  • Límmiði
  • Leiðbeiningar
Útgefandi:
Product ID: 28991 Flokkur: . Merki: , , .