Uppselt
Wasgij_Collectors_Vol3_3in1_1
Wasgij_Collectors_Vol3_3in1_1Wasgij_Collectors_Vol3_3in1_2Wasgij_Collectors_Vol3_3in1_6_BoxWasgij_Collectors_Vol3_3in1_5Wasgij_Collectors_Vol3_3in1_4

Wasgij Original Collector’s Box 3 , ,

Wasgij Original Collectorsbox 3 – 3x 1000 bitar.
Þessi veglegi Wasgij pakki inniheldur 3 púsluspil með kassamyndunum af Wasgij Original 7, 8 og 9, en þessi púsl hafa verið ófáanleg áður þar sem myndirnar voru notaðar einungis sem vísbendingar til að leysa Wasgij gátu. Hér er því ekki um gátu að ræða heldur þrjú bráðfyndin púsl sem halda púslaranum flissandi tímunum saman. Gefið út í takmörkuðu upplagi. Tilvalin gjöf handa Wasgij aðdáandanum.

Wasgij Original nr 7 – Bjarnargreiði
Það jafnast fátt við að skella sér út í guðsgræna náttúruna með fjölskyldunni, grilla og slappa af með bjór í annari og svínarif í hinni. Eitthvað virðist þó fríið hjá þessari familíu vera að fara út um þúfur.

Wasgij Original nr 8 – Háflóð
Sólin lætur loksins sjá sig og fólk flykkist á ströndina til að reyna að nýta daginn sem best. Sumir eru í sólbaði og aðrir að leika sér í sandinum. En eitthvað hefur komið þessum fölu ferðamönnum úr jafnvægi á þessum dásemdardegi.

Wasgij Original nr 9 – Endurinnrétting
Langþráð ósk þessara hjóna rættist þegar vinsæll sjónvarpsþáttur gerði heimili þeirra að viðgangsefni í einum þættinum. Ekki virðast þau vera glöð með endurinnréttinguna sem hefur átt sér stað í fjarveru þeirra. Kunna þau ekki að meta nýjustu tísku?

Hvert púsl er í sérkassa og einn stór kassi er utanum alla þrjá.

Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!

Aldur:
Fjöldi Púslbita:
Vörunúmer: 19115
Stærð: Hvert púsl: 68 x 49 sm
Þyngd: 1886 gr
Stærð pakkningar: 30 x 7 x 41 sm
Framleiðandi Púsls:
Listamaður púsls:
Útgefandi:
Innihald:
3x 1000 bita púsl hvert í sínum kassa
Product ID: 6719 Categories: , , . Merki: , .