Álfaskoðun
Eins og allir vita, rekur jólasveinninn stóra leikfangaverksmiðju á Norðurpólnum og eins og gefur að skilja er þar allt á suðupunkti fyrir jólin. Hvað gerist þegar álfarnir láta sig hverfa og sveinki þarf að fara að leita að þeim? Hvað hafa þeir fyrir stafni á þessum álagstíma?
Skondið og óhefðbundið 1000 bita púsluspil frá Jumbo. Kassinn sýnir ekki myndina sem á að púsla heldur gefur vísbendingu um hana. Þegar þú púslar Wasgij Original púsl, sérðu atburðinn á kassanum frá sjónarhorni persónanna á myndinni. Skemmtu þér við að leysa þessa krefjandi gátu með ímyndunaraflið að vopni.
Þar að auki fylgir 1000 bita aukapúsl í kassanum sem sýnir myndina utan á honum.
Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!