Wasgij magnaður markaður – 1000 bitar
Sjarmerandi útimarkaður um 1950, þarna er til sölu ferskasta grænmeti og ávextir, hin sprækustu naut og meir að segja fíngerðasta postulín frá Kína. En hvað er að sjá? Eitt nautið hefur sloppið af nautamarkaðnum og þrammar um markaðinn með reiðisglampa í augum. Hvað ber framtíðin í skauti sér fyrir markaðsgesti og verslunarmenn? Það er þitt verkefni að komast að því…
Stórskemmtilegt og óhefðbundið 1000 bita púsluspil frá Jumbo. Kassinn sýnir ekki lokaútkomu heldur það sem gerist í framtíðinni. Sá sem púslar þarf því að spá fyrir um framtíð persónanna framan á kassanum. Ögrunin felst í því að lokaútkoman er í raun ekki sú sama og myndin utaná kassanum sýnir en tengist henni samt.
Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!