Wasgij örtröð í búðinni – 1000 bitar
Það er mikið um að vera í búðinni, alla vantar eitthvað og búðareigandinn hefur ekki undan. Mæður versla í matinn og slúðra en börn heimta sælgæti. En hvað varð um týnda kisann sem er auglýstur á hurðinni?
Stórskemmtilegt og óhefðbundið 1000 bita púsluspil frá Jumbo. Kassinn sýnir ekki lokaútkomu heldur það sem gerist í framtíðinni. Sá sem púslar þarf því að spá fyrir um framtíð persónanna framan á kassanum. Ögrunin felst í því að lokaútkoman er í raun ekki sú sama og myndin utaná kassanum sýnir en tengist henni samt.
Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!