Óperudrama 1000 bita púsl
Drama at the Opera 1000 pcs
Loka þarf óperunni þar sem tvær stærstu stjörnurnar eru horfnar! Enginn veit að þær eru fórnarlömb óprúttins glæpamanns. Hvað ætlast hann fyrir? Munu óperusöngstjörnurnar komast heilar frá þessu? Hvað gerist næst?!
Skondið og óhefðbundið 1000 bita púsluspil frá Jumbo. Kassinn sýnir ekki lokaútkomu heldur gefur hann vísbendingu um hana. Þar er ákveðin atburðarás í farvegi og púslaða púslið sýnir hvað gerist í næstu andrá. Skemmtu þér við að leysa þessa krefjandi gátu með ímyndunaraflið að vopni.
Wasgij Retro serían er endurútáfa af fyrstu Wasgij púslunum í nýjum umbúðum.
Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!