Undraskógur
Skemmtilegt 1500 bita púsl frá Heye eftir listamanninn Hugo Prades. Öll dýrin í skóginum geta svo sannarlega verið vinir eins og hér sést. Þau lifa öll í sátt og samlyndi í fallega Undraskóginum. Mikið af smáatriðum fyrir metnaðarfulla og eftirtektarsama púslara. Púslið fæst í þríhyrningslaga kassa. Plakat með myndinni fylgir með.