Dýr heimsins
Flott og fróðlegt leikfang sem inniheldur stórt heimskort og yfir hundrað segla í laginu eins og hin ýmsu dýr sem finnast á jörðinni. Markmiðið er að setja öll dýrin á sín réttu heimkynni á kortinu. Gagnast vel til að læra nöfn á dýrum og löndum.
Janod er franskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í vönduðum og endingargóðum leikföngum sem kveikja neista í huga barna og örva ímyndunaraflið.