Beðið eftir strætó – íslensku jólasveinarnir 1000 bitar , ,

Jólapúsl 2021

Skondið og skemmtilegt 1000 bita púsl með íslensku jólasveinafjölskyldunni.

Jólasveinafjölskyldan er í kaupstaðaferð og hefur ákveðið að spara sér sporin og nota almenningssamgöngur, nærstöddum til mikillar furðu. En á Íslandi vita flestir að það getur verið mikil raun að bíða eftir strætó á veturnar og það er ekkert öðruvísi þó maður búi alla jafna í helli uppi í fjöllum!

Frábært jólapúsl fyrir alla fjölskylduna!

Myndin er teiknuð af listamanninum Brian Pilkington sem er þjóðkunnur fyrir teikningar sínar og snjallar bókaskreytingar. Bækur hans um íslenska þjóðtrú og tröll hafa vakið verðskuldaða athygli og mótað sýn þjóðarinnar á hérlendum kynjaverum.

Aldur:
Fjöldi Púslbita:
Vörunúmer: 47-1059
Stærð: 48,5 x 68 sm
Þyngd: 770 gr
Stærð pakkningar: 27 x 36,5 x 6 sm
Framleiðandi Púsls:
Listamaður púsls: