Flott hvít heyrnartól frá Lexibook, skreytt með myndum af persónum úr Frozen. Heyrnartólin er hægt að tengja við nánast hvaða tæki sem er, bæði þráðlaust í gegnum Bluetooth eða með snúru. Þau eru afar hentug fyrir börn því hljóðstyrkur þeirra er takmarkaður við 85 desibel til að vernda viðkvæm eyru. Hægt er að stilla heyrnartólin í mismunandi stærðir og brjóta þau saman.
Lexibook framleiðir aðallega margvísleg raftæki fyrir fyrirtæki og einstaklinga, en einnig leikföng og hljóðfæri fyrir börn með þekktum merkjum, s.s. Disney, Marvel, Barbie og Paw Patrol.