Milo‘s Mansion Set
Skemmtilegt sett úr Miniworld vörulínunni frá Magformers sem inniheldur 33 stk, þar af 17 segulform, 15 aukahluti og 1 hundafígúru. Með settinu má byggja glæsilegan hundakofa, sannkallað hefðarsetur, fyrir hundinn Míló sem vill hafa fínt í kringum sig. Með fylgir hugmyndabæklingur með 26 mismunandi hugmyndum að hundakofaútfærslum. Einnig er hægt að byggja draumasetrið eftir eigin hönnun.
Hægt er að nota settið með öllum öðrum Magformers vörum en það passar sérstaklega vel við aðrar vörur úr Miniworld vörulínunni, þ.e. Hús Möggu, Hefðarsetur Milós og Eldhús Vélmennakokksins.