Core 2020 settið, er 19. core settið og inniheldur sambland af nýjum og endurprentuðum spilum. Andlit 2020 settsins er hinn mennski planeswalker Chandra Naalar. Settið fjallar lítillega um ævi hennar en hefur þó engan ákveðinn söguþráð og er því hægt að spila á marga mismunandi vegu.
Bundle pakkinn inniheldur 10 booster pakka, 20 grunnlandsspil, 20 premium foil spil og fleira sem gerir leikmönnum kleift að endurbæta stokkinn sinn.
Í Magic The Gathering safnkortaspilinu ert þú Planeswalker; einn af kröftugustu galdramönnunum alheimsins og annara tilverustiga. Með hjálp hinna voldugu spila magnar þú seið, laðar til þín ýmsar kynjaverur og býrð þær til baráttu gegn öðrum galdramönnum með það að markmiði að ná lífsstigum andstæðingsins niður í 0 og slökkva lífsneistann.



