Allt sem þú þarft til að byrja að spila Magic Dragons of Tarkir í einum tilbúnum spilastokk. Inniheldur meðal annars eitt afar verðmætt Premium Foil spil!
Sarkhan hefur endurskapað örlög Tarkir og nú berjast allir tveggja lita ættbálkar undir stjórn drekahöfðingja. Dragons of Tarkir er þriðja og síðasta settið í Khans of Takir vörulínunni.
Í Magic The Gathering safnkortaspilinu ert þú Planeswalker; einn af kröftugustu galdramönnunum alheimsins og annara tilverustiga. Með hjálp hinna voldugu spila magnar þú seið, laðar til þín ýmsar kynjaverur og býrð þær til baráttu gegn öðrum gladramönnum með það að markmiði að ná lífsstigum andstæðingsins niður í 0 og slökkva lífsneistann.



