Hin goðsagnakennda borg Orazca er fundin en nú er háð barátta um völd þar. Þú verður að vera fljótari, klárari, kjarkaðri og sterkari en keppinautar þínir þegar þú berst fyrir yfirráðum yfir hinni ævafornu stórborg. Ef þú vinnur, verður þú valdmesti einstaklingurinn í víddinni.
Rivals of Ixaland er 77. viðbótin við Magic The Gathering söguheiminn en 2. smáviðbótin í Ixalan sögunni. Hver booster pakki inniheldur 15 spil sem hægt er að nota til að styrkja stokkinn sinn og hver veit nema í pakkanum leynist sjaldgæft spil eða premium spil.
Í Magic The Gathering safnkortaspilinu ert þú Planeswalker; einn af kröftugustu galdramönnunum alheimsins og annara tilverustiga. Með hjálp hinna voldugu spila magnar þú seið, laðar til þín ýmsar kynjaverur og býrð þær til baráttu gegn öðrum galdramönnum með það að markmiði að ná lífsstigum andstæðingsins niður í 0 og slökkva lífsneistann.



