Modern Horizons 2 er spilað í svonefndu modern formatti en fylgir ekki söguþræði.
MH2 Set Booster pakkinn inniheldur 12 spil bæði ný og endurprentanir þ.m.a. foil og art spil, sketch eða retro rammaspil og möguleika á mörgum rare spilum.
Í Magic The Gathering safnkortaspilinu ert þú Planeswalker; einn af kröftugustu galdramönnunum alheimsins og annara tilverustiga. Með hjálp hinna voldugu spila magnar þú seið, laðar til þín ýmsar kynjaverur og býrð þær til baráttu gegn öðrum galdramönnum með það að markmiði að ná lífsstigum andstæðingsins niður í 0 og slökkva lífsneistann.



