Alex DIY Wear Boho Bands
Flott skartgripagerðarsett frá Alex fyrir stálpaða krakka. Með því að festa þræðina á vefstólinn er auðvelt að vefa perluþræði á þá svo til verða falleg armbönd sem hver og einn getur hannað eftir eigin höfði. Inniheldur efni í ca. 10 armbönd.
Alex DIY Wear línan býður upp á fjöldamörg skemmtileg verkefni þar sem krakkar geta föndrað eigin skartgripi og skraut.