Flott, stór geymslumappa frá UltraPro fyrir Pokémon spil sem allir alvöru safnarar verða að eiga til að geyma og halda utan um safnið sitt. Rúmar alls 360 spil í aðskildum vösum sem vernda spilin. Myndirnar framan á möppunni sýna persónur frá Galar svæðinu í Pokémon Sword and Shield, þá Grookey, Sobble og Scorbunny.



