Vélfærafræði Vinnustofa
Flott, fræðandi og afar hagnýtt sett frá Thames & Kosmos til að byggja og forrita vélmenni. Með því að fylgja leiðbeiningunum er hægt að byggja 10 mismunandi vélmenni og forrita þau, þannig þau hreyfi sig, skynji umhverfi sitt og hlýði skipunum. Hægt er að byggja m.a. vélmenni með úthljóðaskynjara sem getur numið hluti í umhverfi sínu og forðast þá; vélmenni sem getur kastað bolta og vélmenni sem getur gripið og lyft hlutum. Þegar búið er að læra hvernig tæknin virkar er líka hægt að byggja og forrita eigin hugmyndir af vélmennum. Tengja þarf vélmennin við síma, spjaldtölvu eða tölvu með iOS, Android eða Windows stýrikerfi til að stjórna þeim í gegnum þar-til-gert smáforrit. Einnig þarf 6 AA rafhlöður, rafhlöður ekki innifaldar.