Draugastiginn_3
Draugastiginn_3Draugastiginn_2

Draugastiginn ,

Margverðlaunað borðspil fyrir hressa krakka!

Gömul vofa býr í efsta skotinu í gömlum rústum. Nokkrir hugrakkir krakkar læðast hljóðlega upp drungalegan stiga sem liggur að skotinu. Þau vilja öll vera fyrst til að hræða gömlu vofuna með því að segja: BÖÖÖ! En gamla vofan þekkir þennan aldagamla leik og án þess að krakkana gruni hefur hún lagt álög á teninginn þannig að þau breytast í drauga, hvert á eftir öðru.

Þegar leikmaður kastar teningnum og draugur kemur upp á sá leikmaður að breyta einhverju peði í draug með því að setja einn af draugunum, sem eru geymd við hliðina á leikborðinu, ofan á eitthvert peð annað hvort sitt eigið eða eitt af peðum annara leikmanna. Segulhatturinn smellur þá innan í draugnum og peðið hverfur! Leikmenn þurfa að muna undir hvaða draugi peðið þeirra er. Þegar öllum peðum hefur verið breytt í drauga og draugur kemur upp á teningnum er tveimur draugum víxlað á leikborðinu!

Sá leikmaður sem fyrstur nær upp til gömlu vofunnar og tekst að muna hver hann/hún er, þrátt fyrir allan ruglinginn, stendur uppi sem sigurvegari!

ATH: Inniheldur smáhluti. Ekki ætlað börnum yngri en 3ja ára.

Fjöldi leikmanna: 2-4
Aldur:
Vörunúmer: 06040
Stærð: Leikborð: 51 x 52 sm
Stærð pakkningar: 26,8 x 26,8 x 5,2 sm
Hönnuður:
Útgefandi:
Innihald:
- Stórt leikborð
- Fjórir holir trédraugar
- Fjögur trépeð
- Fjórar litaðar tréplötur
- 1 draugateningur
- leikreglur
islenska
Product ID: 3505 Categories: , . Merki: , , .