Glæsilegt 500 bita púsl úr íslensku teiknimyndinni Hetjur Valhallar – Þór.
Á púslinu er m.a. að sjá hinn hugrakka Þór, glaðværa Mjölni, dverginn Sindra, jötuninn Þyrmi, áttfætta hestinn Sleipni, illu Hel, hina fögru Freyju, knáu Eddu o.fl.
Hetjur Valhallar – Þór er íslensk teiknimynd sem byggir á norrænni goðafræði og fjallar um hinn unga Þór sem dreymir um frægð og frama á vígvellinum fjarri járnsmiðju móður sinnar. Hann er sonur sjálfs Óðins, konungs guðanna, en faðir hans hefur lítið viljað með hann gera. Á meðan bruggar hin illa Hel, drottning undirheimanna, ráð gegn mönnum og guðum. Þegar Þór fær á ótrúlegan hátt upp í hendurnar kröftugasta vopn veraldar, hamarinn Mjölni, hefst æsileg atburðarás og sameiginlega þurfa þeir félagar bjarga heiminum gegn illum öflum.