Hljóðfæraminnisspil!
Komdu í leik með tónlistarmúsinni Maxímús Músíkús! Maxímús Músíkús er lítil tónelsk mús sem villist inn í tónlistarhús og heillast af stóru hljómsveitinni sem æfir þar. Forvitnin leiðir Maxa á vit tónlistarævintýra þar sem hljóðfæri, dans og söngvar koma við sögu. Bækurnar um Maxímús hafa verið gefnar út víða um heim.
Höfundur bókanna um músina knáu er flautuleikarinn Hallfríður Ólafsdóttir og myndskreytingarnar eru eftir Þórarin Má Baldursson, víóluleikara.