Nimitz Force Sjóorustuleikur ,

Æsispennandi gagnvirkur sjóorustuleikur með ljósum og hljóðum frá Lexibook. Tveir leikmenn stjórna flota sem samanstendur af fimm skipum hvor og markmið þeirra er að finna öll skip andstæðingsins og sökkva þeim. Leikmennirnir geta ákveðið fyrirfram hvort þeir vilja nota svokallaða jókera eða leynivopn í leiknum en þá fær hvor leikmaður auk venjulegra skota, tundurskeyti, mega-sprengju og ratsjá sem styrkja vopnabúr þeirra. Leikborðið gerir leikinn enn meira spennandi með tímatöku, ljósum og hljóðum sem heyrast þegar ýtt er á takka til merkis um að skoti hafi verið hleypt af eða hitt takmark sitt. Gengur fyrir 3 x AA rafhlöðum (ekki innifaldar).

Lexibook framleiðir aðallega margvísleg raftæki fyrir fyrirtæki og einstaklinga, en einnig leikföng og hljóðfæri fyrir börn með þekktum merkjum, s.s. Disney, Marvel, Barbie og Paw Patrol.

Fjöldi leikmanna: 2
Aldur:
Vörunúmer: GT2500
Útgefandi:
Innihald:
• Leikborð með vegg
• 10 skip
• 2 tundurskeyti
• 2 sprengjur
• 2 ratsjár
• 10 rauð flögg
• 200 hvítir pinnar
• 68 rauðir pinnar
• Leiðbeiningar




Product ID: 26552 Categories: , . Merki: , , , .