Skemmtileg útgáfa af hinu sígilda fjölskylduspili Ubongo frá Thames & Kosmos fyrir 1-4 leikmenn, 10 ára og eldri. Í þessari útgáfu þurfa leikmenn að keppast um að byggja þrívíddarform eftir púslforskrift á leikspjöldunum áður en tíminn rennur út og fá í laun gimsteina. Sá sem á verðmætasta gimsteinasafnið í leikslok sigrar.